Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 353 — 346. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um opinber störf á landsbyggðinni.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvernig hyggst ráðherra framfylgja stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að því er snertir fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni?
2. Hver hefur þróunin verið varðandi fjölgun opinberra starfa á starfsstöðvum undirstofnana ráðuneytisins það sem af er kjörtímabili?
3. Hvernig er háttað fjárframlögum til fjölgunar starfa í undirstofnunum ráðuneytisins á landsbyggðinni?
4. Hvernig samrýmist uppsögn tveggja starfsmanna Persónuverndar á starfsstöð á Húsavík frá og með áramótum fyrrnefndum áherslum í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um fjölgun starfa á landsbyggðinni?
5. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að fastsetja starfsstöð sýslumanns á Þórshöfn sem annars kynni að leggjast af?
Munnlegt svar óskast.